HRAUNHLAUPIÐ
Í sjöunda sinn verður haldið utanvegarhlaup í Mývatnssveit, frá Dimmuborgum að Jarðböðunum við Mývatn þann 30. maí 2025.
Hlaupið er 9,4km langt í gegn um einstaka náttúru Dimmuborga, hraunið, hverfellssandinn og endar svo við Jarðböðin við Mývatn.
Þátttökugjald: 9.900kr
Innifalið í þátttöku er flögutímataka, aðgangur í Jarðböðin við Mývatn og léttar veitingar í lok hlaups.
ATH. Fólksflutningur frá Jarðböðunum að Dimmuborgum er EKKI innifalin. Hægt verður að kaupa sér rútumiða frá Jarðböðunum að Dimmuborgum, brottför rútunnar er kl. 16:45. Rútumiðinn kostar 2000 kr. og aðeins er hægt að kaupa hann um leið og miðar í hlaupið eru keyptir.
Dagskrá:
16:00 - Mæting í Kaffi Borgir. Skráning opnar.
18:00 - Hlaup ræst. Hefst við inngang í Dimmuborgir (á bílastæði).